3.11.2011 | 12:12
Sameiginleg sendiráð Norðurlandana
Sameinleg sendiráð Norðurlandana
Er þetta á borði eða bara draumsýn
Þetta er nu umræða sem oft hefur verið verið i gangi a undanförnum árum og þa oftast i sambandi við fundi Norðurlanda ráðs en síðan hefur ekkert orðið um framkvæmdir
Mörgum til angurs og storra fjárútlata þa er folk þarf að endurnýja vegabréf svona utan að fólk komi til Islands
Nýlega þurfti unndirritaður að fá sér nýtt vegabréf en þar sem búseta hans er i sunnaverðri Afriku var nú úr vöndu að ráða
Haft var samband við þjóðskrá og þá kom nú bara í ljós að
Koma til Islands að fylla út umsókn og siðan að biða i viku eftir útgáfu a nýu vegabréfi
Við nánari eftirgrenslan kom nú í ljós að það eru nokkur sendiráð með búnað til að taka við umsóknum en þau eru
Eftirfarandi Osló,Stokhólmur,Kaupmannahöfn ,London og Berlin i Evropu,Peking i Kina of Woshington i USA
Semsagt öll á norðurhvelinu
Ekkert sunnan miðbaugs
Næsta skref var að athuga með önnur norræn sendiráð en þau nota samskonar bunað til umsoknar og er hann rafrænn og umsoknar sendar i tölvuposti til Þjóðskrár
Þá kom i ljós að það er ekki enþá pólitískur vilji til að samnýta þennan bunað
Nú var úr vöndu að ráða ein blaðsiða eftir i vegabréfinu og mörg ríki gefa ekki áritun nema að það séu 4 til 6 auðar blaðsíður i vegabréfinu
Pantaður var timi i sendiráðinu i Berlin of farið að athuga með flug
Til að gera langa sögu stutta var ferðalagið svona
Byrjað a að keira 450 kilametra a flugvöll flug i 10 og halfan tima til Frankfurt siðan með lest til Berlinar i 5 tima
Gist i nott i Berlin
Mætt i sendiráðið a tilsettum tima og gengið frá umsokn siðan beint i lest aftur til Frankfurt og flug til baka aftur um kvöldið i 10 og hálfan tima og siðan að keira heim 450 kílometra
Alt i alt 3 sólahringar og kostnaður um Iskr 200,000 þúsund
Mér er skylt að upplysa að upplysingar fra þjóðskrá og samskifti við þa stofnun voru til fyrirmyndar og ekki síður allar upplýsingar og mótökur hjá sendiráðinu voru einnig til fyrirmyndar og mjög gagnlegar
Vegabréfið var afhent bróður minum sama dag og hann siðan sendi mer það og var það komið i minar hendur nokkrum dögum seinna
Þetta er nú raunveruleikinn i dag með utgafu vegabréfa og mer hefur verið hugsað til annara Islendinga sem búa út um allan heim og þurfa að endurnýja vegabréf a 5 ára fresti og næsta sendiráð norðan miðbaugs
Með samnytingu norræna sendiráða væri þetta mun auðveldara og ekki síður kostnaðarminna
Ég vil enndregið skora á Islensk yfirvöld að endurskoða utgáfu a vega bréfum að taka upp aftur stærra vegabref (fleiri blaðsiður)
Það er mikill fjöldi af Islenskum sjómönnum út um allan heim,Islenskir flugliðar og síðan er þónokkuð stór hópur af fólki sem hefur atvinnu af að ferðast
Kveðjur fra Afriku
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Erlent
- Árásir Rússa halda áfram þrátt fyrir vopnahlé
- Fimm drukknað í öldugangi í Ástralíu
- Rússneskir borgarar efast um gagnsemi vopnahlésins
- Skortur á pistasíum vegna Dúbaí-súkkulaðsins
- Úkraínskir hermenn hafa enga trú á vopnahléinu
- Ætlar að frelsa gíslana án þess að láta undan
- Úkraínumenn munu virða vopnahléið
- Merki um árangur en líklegast sýndarmennska
- Vopnahlé ekki á pútínskum forsendum
- Ekki hægt að treysta Pútín
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.